Móðir náttúra á sér erfiða daga

Við erum byrjuð að sjá náttúruna haga sér eins og hún se í einhverjum rússíbana. Náttúran er að berjast við vandamál sem hún hefur svo mjög mjög sjaldan lent í. Það vandamál er ~ +2°C meðalhiti vegna gróðurhúsaáhrifa.

Við Íslendingar munum upplifa mjög skrítið og jafnvel mjög heitt sumar þetta ár. It's guaranteed!


mbl.is Man ekki önnur eins umskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig gæti verið hægt að bjarga íslandi?

Ég viðurkenni að ég hef enga háskólamenntun í félagsfræði svo það sem ég segi hér getur verið algjör vitleysa. Þrátt fyrir það þá er þetta eitthvað sem ég held að sé góður hagur.

Til að skýra aðeins þá er ég á þeirri línu í pólitík að mér finnst pólitík drasl sem á sér ekki stað eins og hún er í dag, að auki er ég á móti ríkisvaldi yfir vinnumarkaði þjóðar. Ég er ekki á móti því að ríki sé til en í mínum reglum þá er eina vald ríkisins að vernda eignir þjóðarinnar og lög.

Svona til að skýra aðeins meira þá gef ég smá dæmi hér; Segjum sem svo að það sé fyrirtæki sem er með einokun á helstu byrgðir yfir stóru svæði og að það fyrirtæki lendi í heljarinnar skuld. Hvað myndi gerast? Já, það yrði þrot á byrgðum. - Þetta er alveg eins með ríki að þegar það er með einokun á helstu sviðum og einfaldlega "á" markaðinn þá er það óumflýjanlegt að markaðurinn sjálfur verði gjaldþrota ef ríkið lenti í stórri skuld.

Ef markaðurinn yrði gerður frjáls, já ég veit að það mun hafa stórar afleiðingar ef það væri ekki gert smoothly, þá verður ríkisstjórnin bara eins og eitt fyrirtæki sem þyrfti að bjarga sjálfu sér og við þjóðin yrðum laus við skuld sem er ekki okkar.

- - -

Þetta er svolítið stórt orðað hjá mér að bjóða uppá frjáls-markaðs kapítalísma á þessum tímum. Það yrði kannski debate í da komment svæðinu en þetta er bara mín smá-stór hugmynd sem ætti að bjarga þjóðinni gagnvart því að þurfa ekki að borga skuld sem er ekki þeirra skuld.

Hún gæti verið algjör vitleysa en ég veit þó að frelsi er réttlátt og allir ættu að hafa þann möguleika.

I sound like an asshole, don't I? :P


Statism is Slavery

Just sharing a cool video!

Ég er ekki anarkisti, ég er Anti-Statisti. Ég mun ekki láta kalla mig anarkista!

Það kemur fram smá anarkista add í þessu myndbandi en ég læt ekki framhjá mér fara allt hitt að það er því miður satt.

Hey annað cool video!


Libertarianism

Hvað er Libertarianism?

Ég veit nokkuð mikið hvað það er og um hvað það snýst. Mig langar hér að gefa fólki tækifæri á að læra um spekina á bakvið það sem Libertarianism stendur fyrir, læra um hvað Libertarianismi er.

Ég er ekki hér að fara að predika um Libertarianisma frá mínum munni ó nei. Ég vill frekar gefa YouTube link á video þar sem maður að nafni Mark Thornton talar fyrir sal af fólki um spekina á bakvið Libertarianisma.

Ég hef í mörgum gömlum greinum talað hálfpartinn með engu samhengi og mikið út í hött margt sem ég hef sagt. Ég vill biðjast afsökunar á þeim greinum sem eru lélegar vegna þess að á þeim tíma hafði ég minni reynslu af að pósta blog greinum á netið.

Til að enda þennan póst hér er myndbandið. Athugið að það er bara tal.


Skammaðu einstaklinginn, ekki hópinn.

Að kenna heilum stjórnmálaflokk um öll þau mistök sem verða á er svo út í hött. Þetta voru einstaklingar, flokkurinn kemur þessu ekki neinu máli við. Fjármálakerfið hefur þessar glufur og einstaklingarnir sem notuðu þær göbbuðu ALLA þjóðina og gáfu styrki til mannanna sem voru í stjórn á þeim tíma.

Til hvers voru þessir styrkir allir frá þessum svindlurum? Þeir voru til þess að múta mennina sem voru í stjórn til að 'ekki segja frá' og til að stjórna þeim og segja þeim hvað þeir ættu að gera.

Hefði Samfylkingin frekar verið í stjórn þá hefðu mennirnir frekar mútað samfó í staðinn, og ekki segja að samfó myndi ekki láta múta sig vegna þess að næstum því hver einasta manneskja í póló hefur fengið og tekið við einhverjum mútum (sama hvaða flokk).

 

Það er alveg sama hvaða manneskja er í pólitík og hvaða flokk hún er í, pólitík er drasl kerfi sem snýst bara um peninga og celebrities en ekki til að halda þjóð gangandi. Fólk sem kemst í pólitík geta verið hver sem er, bara ef þú kannt að tala og hefur charisma þá kemstu í pólítík, skiptir engu máli þó þú sért heimskasta manneskja á jarðríki.

Frekar skal henda niður pólitík og gefa fólki sem hefur viljann og vitið að sjá um einstaka kerfi og fyrirtæki, svo skal ráða fólk sem hefur að minnsta kosti Bachelor gráðu í hagvísindum til að sjá um bæjarstjórn (bæir mega ekki eiga sín dótturfyrirtæki).

 

Ég veit að stór hluti af þjóðinni heldur að ef skattar hálfpartinn hverfa og þjónusta yrði undir stjórn einkaaðila, þá munu þeir notfæra sér tækifærið til að svindla og skemma fyrir. Bíddu, eru ekki til verkalýðsfélög og hinir og þessir sem sjá um að passa það að enginn sé að svindla?

Svo er það líka að stór hluti af þjóðinni heldur að ef eitthvað er í einkaeign þá er það dýrara. Hey, wait a minute, mun ekki verðið lækka og mun ekki fólk eiga meiri peninga er skattar hálfpartinn hverfa? Það hlýtur að vera vegna þess að fyrirtæki þurfa líka að borga skatta fyrir allskonar hluti sem viðkoma starfsemi, viðhald og fjármagn.

Svo hlýtur fólk líka að halda að ef einkaeign þá eru verri þjónusta. Hmm, ég held að ef þjónusta og gæði sé lágt þá mun fyrirtækið ekki geta haldið sér uppi vegna þess að það er enginn í viðskiptum við það :O döh

 

Munið það að frjálshyggja er ekki vandamálið, það er kerfið. Ef kerfið hefur glufur þá eru alltaf einhverjir sem finna þær og notfæra sér þær. Það þarf að taka eftir glufunum og laga kerfið, en ekki hlaupa skælandi í vörn og stjórnarbrjálæði.

Munið það líka að til eru einstaklingar, og þegar eitthvað gerist þá eru það einstaklingar sem eiga sökina en ekki hópar af fólki. Til dæmis: þá eru til fullt af íslendingum sem kunna í alvörunni að keyra og fullt af íslendingum sem kunna ekki.


Rafmagsnbílar

Ég væri til í að fá einn svona í skiptum við gamlan bíl og uppborgun þá meina ég kaupa mjás. Ég er svífandi um í hinu olíulausa draumalandi mínu Sideways
mbl.is Rafbílaleiga í HR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ég fá hass?

Ég var að spá í því hvort ég megi fá hass. Ég er bara að biðja um smá tilraunaskammt svona til að fá fíling hvernig það er að vera undir áhrifum þess, og þá er ég að meina í sambandi við THC þar sem það á að hjálpa mörgu fólki eins og til dæmis fólki sem þjáist að döpurleika og leti.

Ég þjáist af leti og fleiru og var að vonast til þess að hassið geti hjálpað mér betur en einhver þunglyndislyf eða þannig. No big deal u know.

Vonandi er hægt að fá einhverja læknalega/löglega undankomuleið right, eða þarf ég að drulla mér til hollands? Ég held að í hollandi séu margir sem rækta vitlaust og svindla á manni skooooooo


mbl.is Fíkniefni og þýfi í Kópavoginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann hakkaði ekki. Hann Crackaði

Ég held að fréttamenn morgunblaðsins þurfi á smá kennslustund að halda varðandi merkingu orðsins að hakka (hacking).

Merking þessa orðs er mjög einföld og auðskiljanleg og ég vill að venjulegt fólk læri hana og lærir að nota orðið þegar það á við!

Merking þess að hakka (hacking) er þegar einhver tekur hlut eða kóða sem er ÞEGAR VIÐ HENDI og breyti honum eftir sínum vilja til að hluturinn/kóðinn þóknist þeirri persónu.

Orðið Hacking á ALDREI við þegar einhver reynir að brjótast inn í eitthvað sem er lokað,læst,varið með hjálpartækjum eða án. Í þeim tilfellum er orðið Cracking notað.

Dæmi: Cracking the code. Cracking your way in. Cracking the wall.

Ég get ekki fundið íslenskt orð við það ákkurat á stundinni en með snöggri hugsun kemur orðið að Krakka.

Vonandi verður þetta lagfært eins og skot, því fyrir menn eins og mig þá er það !Hneyksli! að sjá þetta koma fyrir.


mbl.is Fundinn sekur um að hakka tölvu Palin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálsi markaður Steina Jóðs

Í augum Steina Jóð er hinn frjálsi markaður svona eins og Djöfullinn að reyna að leiða fólk til helvítis. Vandamálið er ekki hinn frjálsi markaður.

Sá hræðsluáróður um að hann sé orsök allra vandamála er löngu oðinn úreltur.

Sá hræðsluáróður er notaður til að gefa ríkisstjórn meiri völd og hindra meira fyrir að venjulegt fólk geti lifað heilbrigðu og góðu lífi (búa til meiri fátæklinga).

 

* Hin raunverulegu orsök allra vandamála eru allar þær reglur sem ríkisstjórn setur til að hindra frelsi einstaklingsins

* Fjármálakerfið sem notað er í dag út um mest allan heim (vaxta- og loftpeningakerfið).

* Allt það traust sem ríkisstjórn gefur stórfyrirtækjum um að þau séu að segja sannleikann meðan þau eru í stórum vandamálum.

* Í tilfelli Íslands -- að ríkisvæða banka!!

 

Þetta er það sem ég sé vera að. Ef einhver hefur annað að segja endilega fræða þá heilann á mér svo ég geti leiðrétt þær villur sem ég hef gert.


mbl.is „Rán var það og rán skal það heita“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki kenna vefsíðunni um það

Eins og ég sagði, ekki kenna vefsíðunni um það! Þetta eru hans eigin mistök. Haha, hann gleymdi að gera wall (vegginn) lokaðan fyrir ókunnugum :D

Þetta er actually (í alvörunni) fyndið :D !!


mbl.is 100 óboðnir gestir mættu vegna Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Gjarnan
Gjarnan
Ég legg áherslu á að gefa lesendum greiða leið að sannleikanum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 5559

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband